Lengd: Ekki lengra en 3 mínútur.
Um hvað: Þú ræður!
Hvernig: Hver notar sína aðferð. Raulaðu lagið, spilaðu á hljóðfæri eða sendu nótur og texta. Hvað sem hentar þér best. Lögin má taka upp á síma, í tölvu eða hvernig sem er. Það eina sem þarf að hafa í huga er að laglínan sé auðheyranleg. Laginu þarf að fylgja texti sem skrifa skal í textaboxið.
Skilafrestur: 30. nóvember
Hvað svo: Valin verða þrjú lög sem höfundar vinna áfram með atvinnutónlistarmönnum. Lögin verða flutt á Sögum, verðlaunahátíð barnanna.